Fara í efni
06.10.2026 Fréttir, Bæjarráð

Bæjarráð mótmælir harðlega sameiningu lögregluembætta og krefst þess að fallið verði frá áformunum

Deildu

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhugaðri sameiningu lögregluembættanna á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Ráðið hafnar því að sjálfstætt lögregluembætti á Austurlandi verði lagt niður og yfirstjórn löggæslu færð úr landshlutanum. Það krefst þess að fallið verði frá áformunum og þess í stað ráðist í eflingu lögreglunnar á Austurlandi.

Í bókun bæjarráðs er lögð áhersla á að stjórnun og ákvörðunarvald verði áfram á Austurlandi. Fyrirhugaðar breytingar fælu í sér að stjórnun löggæslu yrði færð í margra klukkustunda fjarlægð og út fyrir Norðausturkjördæmi.

Sameining svarar ekki þörf fyrir öflugri löggæslu

Sveitarfélög á Austurlandi hafa lengi kallað eftir fjölgun lögreglumanna, bættum tækjabúnaði og auknu landamæraeftirliti. Bæjarráð telur að flutningur yfirstjórnar úr landshlutanum svari ekki þeim þörfum.

„Fækkun embætta og breyting á skipuriti jafngilda ekki eflingu löggæslu. Landfræðilegar fjarlægðir og verkefni lögreglunnar hverfa ekki við sameiningu,“ segir í bókuninni.

Bæjarráð bendir á umfangsmikla atvinnustarfsemi á Austurlandi, mikinn innflutning og útflutning um hafnir og mikilvæg verkefni á sviði landamæraeftirlits. Þá hafi reynsla undanfarinna ára af náttúruvá sýnt með ótvíræðum hætti mikilvægi staðbundinnar þekkingar, skýrrar ábyrgðar og öflugrar stjórnunar almannavarna í heimabyggð.

Skýrar upplýsingar um ákvörðunarvald vantar

Að mati bæjarráðs nægja yfirlýsingar um óbreyttan fjölda starfsstöðva og aðstoðarlögreglustjóra í hverju umdæmi ekki til að tryggja staðbundið ákvörðunarvald. Leggja þurfi fram skýrar upplýsingar um valdheimildir, ráðstöfun mannafla, fjármögnun og stjórnun almannavarna.

Án þessara upplýsinga telur bæjarráð engan grundvöll fyrir fullyrðingum um að breytingarnar styrki þjónustu og viðbragðsgetu á Austurlandi.

Ráðið telur tengingu Austurlands við Suðurland og Vestmannaeyjar illa samræmast landfræðilegum aðstæðum og þjónustutengslum. Komi til skoðunar breytingar á umdæmaskiptingu sé eðlilegra að horfa til samstarfs við Norðurland. Slík skoðun verði þó að byggjast á raunverulegu samráði við sveitarfélög og viðbragðsaðila og mati á áhrifum á öryggi íbúa.

Krefst aukins mannafla, búnaðar og fjárveitinga

Bæjarráð gerir kröfu um að í stað sameiningar verði lögreglan á Austurlandi efld með auknum mannafla, bættum búnaði og fjárveitingum sem endurspegli umfang verkefnanna.

„Austurland þarf öflugt lögregluembætti með stjórnun og ákvörðunarvald í landshlutanum.“