Fara í efni
26.10.2026 Fréttir, Stjórnsýsla og fjármál

Bæjarráð: Skerðing á Loftbrúnni óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum

Deildu

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega boðaðri skerðingu á Loftbrúnni og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Auka þurfi stuðninginn og tryggja að hann haldi verðgildi sínu.

Bæjarráð segir há flugfargjöld verulega íþyngjandi fyrir íbúa Austurlands og hefur þungar áhyggjur af áhrifum ferðakostnaðar á þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Skerðingin gangi gegn markmiðum um jafnt aðgengi að þjónustu og tækifærum óháð búsetu.

Bókunin var gerð vegna áforma innviðaráðuneytisins um breytingar á skilmálum Loftbrúar um afsláttargreiðslur vegna innanlandsflugs.

Bókun bæjarráðs í heild:

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega boðaðri skerðingu á Loftbrúnni. Leita þarf leiða til að auka stuðninginn og tryggja að hann haldi verðgildi sínu. Há flugfargjöld eru verulega íþyngjandi fyrir íbúa á Austurlandi. Flugsamgöngur eru í mörgum tilvikum almenningssamgöngur íbúa og nauðsynlegar til að sækja heilbrigðisþjónustu sem fellur ekki undir endurgreiðslur Sjúkratrygging, nám, menningu og aðra þjónustu.

Bæjarráð hefur jafnframt þungar áhyggjur af því að mikill ferðakostnaður vegna æfinga-, keppnis- og æskulýðsferða leiði til aukins brottfalls barna og ungmenna úr íþrótta- og æskulýðsstarfi. Fjárhagur fjölskyldna og búseta eiga ekki að ráða möguleikum barna til þátttöku.

Skerðing á Loftbrúnni er óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni og gengur gegn markmiðum um jafnt aðgengi að þjónustu og tækifærum óháð búsetu. Austurland er í sókn. Fjárfestingar, húsnæðisuppbygging, lágt atvinnuleysi og öflugt atvinnulíf sýna styrk svæðisins og framtíðarmöguleika þess. Stjórnvöld þurfa að styðja við þessa þróun með því að tryggja hagkvæmar og áreiðanlegar samgöngur og góð búsetuskilyrði. Bæjarráð skorar á stjórnvöld að falla frá boðaðri skerðingu og vinna þess í stað að eflingu Loftbrúarinnar í samráði við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar.