Fara í efni
10.08.2026 Fréttir, Íþróttir

Bergey Stefánsdóttir tekur við stjórn íþrótta- og frístundamála

Deildu

Bergey Stefánsdóttir hefur tekið við starfi stjórnanda íþrótta- og frístundamála hjá Fjarðabyggð. Alls bárust 11 umsóknir um starfið.

Bergey hefur starfað hjá Fjarðabyggð frá árinu 2015 og býr yfir víðtækri reynslu af þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur. Hún er með BA-gráðu í félagsráðgjöf og diplóma í barnavernd og stundar nú meistaranám í forystu og stjórnun.

Bergey hefur undanfarin ár starfað á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar, meðal annars á sviði félagsþjónustu og barnaverndar. Nú síðast gegndi hún starfi verkefnastjóra farsældar barna og tók þar þátt í að leiða innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

„Áhugi minn á íþrótta- og frístundastarfi er mikill og ég hef lengi fylgst með og tekið þátt í uppbyggingu þess starfs sem unnið er að fyrir börn og ungmenni í samfélaginu. Í starfi mínu á fjölskyldusviði hef ég séð hversu mikilvægt það er að skapa öruggt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börn og unglingar geta myndað tengsl, eflt sjálfstraust og félagsfærni og fundið styrkleika sína,“ segir Bergey.

Hún segir þá sýn verða leiðarljós í nýja starfinu og leggur áherslu á gott samstarf við starfsfólk, iðkendur, foreldra og félagasamtök.

„Markmiðið er að efla enn frekar það öfluga íþrótta- og frístundastarf sem þegar fer fram í Fjarðabyggð. Þótt börn og ungmenni verði áfram í forgrunni er jafnframt mikilvægt að skapa tækifæri fyrir fólk á öllum aldri til þátttöku í íþrótta-, tómstunda- og félagsstarfi.“

Bergey bendir á að virk þátttaka í slíku starfi hafi víðtæk áhrif.

„Með virkri þátttöku fólks á öllum aldri styrkjum við lýðheilsu, félagsleg tengsl og samfélagið í heild.“