Fara í efni
25.10.2016 Fréttir

Birgir Jónsson ráðinn í starf upplýsingafulltrúa

Deildu

Birgir er með BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands ásamt kennsluréttindum frá Háskóla Íslands. Birgir hefur einnig lokið einingum á meistarastigi í stjórnun menntastofnana og er í diplómanámi í opinberri stjórnsýslu.

Meðal helstu verkefna upplýsingafulltrúa eru stefnumótun og umsjón með upplýsinga- og kynningarmálum sveitarfélagsins, þróunar- og verkefnavinna vegna samfélagsmiðla og rafrænnar stjórnsýslu, miðlun frétta og fjölmiðlasamskipti, vefumsjón, umsjón með gerð kynningarefnis auk skipulagning á viðburðum á vegum sveitarfélagsins.

Upplýsingafulltrúi starfar á stjórnsýslu- og þjónustusviði.

Birgir er boðinn velkominn til starfa en hann mun hefja störf um áramótin.