Þetta er í níunda sinn sem hátíðin er haldin en sem fyrr samanstendur hún bæði af fræðsluverkefnum sem boðið er upp á í leik- og grunnskólum á skólatíma og opnum viðburðum sem börn og ungmenni geta notið með fjölskyldu og vinum. Dagskráin er með glæsilegasta móti en yfir 30 opnir viðburðir verða í boði um allt Austurland frá miðjum september og fram í miðjan október. Markmið hátíðarinnar er sem fyrr að börn og ungmenni, óháð búsetu, hafi aðgang að faglegum og fjölbreyttum listviðburðum og fái sjálf tækifæri til skapandi þátttöku.
Fjörugar upplifanir og fjölbreytt sköpun
Einn af hápunktum BRAS í ár eru ný sirkussýning úr smiðju sirkuslistahópsins Hringleiks sem ber heitið Shjówmen en hún er innblásin af fiskveiðum og veröld sjómennskunnar. Sýningin verður bæði sýnd í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og í íþróttahúsinu á Reyðarfirði helgina 26.-27. september. Þá mun rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson heimsækja bókasöfnin í Múlaþingi, Skoppa og Skrítla leggja leið sína í Fjarðabyggð, skrímsli verða til umfjöllunar á Minjasafni Austurlands, í Skaftfelli verður hægt að kynna sér undraheima prentlistarinnar og í Sköpunarmiðstöðinni verður bæði hægt að skapa úr pappamassa og brauðdeigi svo fátt eitt sé nefnt. Þá mun fjöllistakonan Kateřina Blahutová koma við í sex bæjum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar og bjóða upp á sæskrímslasmiðju þar sem börn teikna sæskrímsli sem listakonan glæðir lífi í sýningarrýminu jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar um opna viðburði BRAS má finna á facebook síðu hátíðarinnar: https://www.facebook.com/BRASAusturland/events
Fræðsla í gegnum listir mikilvægur þáttur
Undirbúningur og listræn stjórnun hátíðarinnar er nú í höndum menningarmiðstöðvanna fjögurra á Austurlandi: Sláturhússins á Egilsstöðum, Menningarmiðstöðvar Fjarðarbyggðar, Skaftfells á Seyðisfirði og Sköpunarmiðstöðvarinnra á Stöðvarfirði en auk þeirra standa fleiri stofnanir, félagasamtök og listafólk fyrir viðburðum.
Fræðsla í gegnum listir hefur alltaf verið stór hluti af Bras. Menningarmiðstöðvarnar standa árlega fyrir metnaðarfullum fræðsluverkefnum sem skólunum standa til boða og á því er engin undantekning í ár. Að þessu sinni býður Sláturhúsið öllum 6. bekkingum í landshlutanum upp á sirkuslistanámskeið undir stjórn sirkuslistahópsins Hringleiks og Skaftfell stendur fyrir myndlistarnámkseiði sem ber heitið Hvaðan kemur confetti? þar sem Hildigunnur Birgisdóttir leiðir nemendur á yngsta stigi inn í töfraheim lita og skrauts. Sarah Steinar heimsækir svo leikskólana með tónlistarleik.
Þora ! Vera! Gera!
BRAS hátíðin var fyrst haldin árið 2018 og hefur frá upphafi verið unnin í samstarfi listafólks, menningarstofnana, sveitarfélaga og Austurbrúar. Angar hennar teygja sig um allt Austurland en lögð er áhersla á að listviðburðir fari fram á sem flestum stöðum á svæðinu og fræðsluverkefni menningarmiðstöðvanna standa alltaf öllum skólum til boða. Aðgengi allra barna og ungmenna að listum og menningarviðburðum og ekki síst þátttaka þeirra í sköpun og upplifun er leiðarljós hátíðarinnar og lögð er áhersla á inngildingu, þátttöku, túlkun og innblástur og að hvetja börn til að: Þora! Vera! Gera!
Samstarfs- og styrktaraðilar BRAS 2026 eru:
Austurbrú
Fjarðabyggð
Múlaþing
Vopnafjarðarhreppur
Uppbyggingarsjóður Austurlands
Barnamenningarsjóður
Landsvirkjun
Héraðsprent
