Viðgerð á hitaveitunni á Eskifirði er lokið. Vatnstruflanir eru á Eskifiðir 

Fara í efni
19.11.2026 Fréttir, Menning og mannlíf

„Bretum fannst Lúðvík með eindæmum þrjóskur“

Deildu
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, fjallar um þorskastríðin í Neskaupstað föstudagskvöldið 20. nóvember.

Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, kynnir nýútkomna bók sína, Vald hinna veiku – Saga landhelgismálsins 1971–1974, í Egilsbúð í Neskaupstað föstudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Í erindi sínu mun hann meðal annars fjalla um hlutverk Lúðvíks Jósepssonar í átökunum við Breta og varpa nýju ljósi á sögu sem er flóknari en oft er látið í veðri vaka.

Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og alþingismaður frá Neskaupstað, gegndi lykilhlutverki í baráttunni fyrir útfærslu íslensku fiskveiðilögsögunnar. Guðni segir að Bretum hafi þótt Lúðvík með eindæmum þrjóskur.
Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og alþingismaður frá Neskaupstað, gegndi lykilhlutverki í baráttunni fyrir útfærslu íslensku fiskveiðilögsögunnar. Guðni segir að Bretum hafi þótt Lúðvík með eindæmum þrjóskur.

„Þorskastríðin eru þjóðarsaga sem á enn erindi við okkur, eins og sást síðast í atkvæðagreiðslunni um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu,“ segir Guðni. Hann bendir á að gjarnan sé dregin upp einföld mynd af þorskastríðunum þar sem Íslendingar hafi staðið saman gegn erlendu stórveldi og að lokum haft sigur. 

„Söguna er hægt að segja í stuttu máli á þann veg að við Íslendingar höfum staðið saman og unnið fullan sigur en svo gerist hún flóknari þegar vel er að gáð,“ segir hann. 

Þjóðarsaga og spennusaga

Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og alþingismaður frá Neskaupstað, gegndi lykilhlutverki í baráttunni fyrir útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Guðni segir að afstaða hans hafi verið afdráttarlaus og að Bretar hafi haft ákveðnar skoðanir á honum.

„Í allri sögu landhelgismálsins stóð Lúðvík gjarnan fremstur í stafni, vildi aldrei láta undan og Bretum fannst hann með eindæmum þrjóskur.“

Erindi Guðna ber yfirskriftina Landhelgismál í nýju ljósi og tekur mið af efni nýútkominnar bókar sem ber heitið Vald hinna veiku og verður til sölu á staðnum. Í erindinu mun hann segja frá átökunum og fólkinu sem kom við sögu. „Þorskastríðin eru ekki aðeins þjóðarsaga, þau eru líka spennusaga,“ segir Guðni.

Kápa bókarinnar Vald hinna veiku – Saga landhelgismálsins 1971–1974. Bókin verður til sölu í Egilsbúð í tengslum við erindi höfundar föstudaginn 20. nóvember.
Kápa bókarinnar Vald hinna veiku – Saga landhelgismálsins 1971–1974. Bókin verður til sölu í Egilsbúð í tengslum við erindi höfundar föstudaginn 20. nóvember.

Erindið verður haldið í Egilsbúð í Neskaupstað föstudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Að viðburðinum standa Menningarstofa Fjarðabyggðar, Héraðsskjalasafnið í Neskaupstað og SÚN.