Nokkrar breytingar verða í hópi skólastjórnenda í Fjarðabyggð við upphaf næsta skólaárs.
Sara Lind Dagbjartsdóttir hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra á Eyrarvöllum Neskaupstað, en hún hefur sinnt starfinu í forföllum. Sigurlaug Birgisdóttir fráfarandi leikskólastjóri er farin til annarra starfa á svæðinu. Henni er þakkað fyrir framlag til skólastarfs í Fjarðabyggð og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. Þá tekur Verna Sigurðardóttir við starfi sérkennslustjóra á Eyrarvöllum 1. ágúst.
Hildur Ósk Pétursdóttir hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra við Kærabæ Fáskrúðsfirði, en hún hefur sinnt starfinu í forföllum í meira en ár. Ásta Eggertsdóttir sem hefur starfað við skólann frá 1998 og verið leikskólastjóri síðust 12 árin mun áfram starfa við skólann. Henni er þakkað fyrir framlag til til skólastarfs í Fjarðabyggð sem stjórnandi og því fagnað að skólinn nýtur hennar reynslu og þekkingar áfram.
Ingibjörg María Þórarinsdóttir tekur við starfi aðstoðarleikskólastjóra við Lyngholt Reyðarfirði, 1. ágúst, þegar Gerður Ósk Oddsdóttir lætur af störfum. Gerður Ósk hefur starfað við leikskólana í Fjarðabyggð í 30 ár. Hún hefur verið aðstoðarskólastjóri bæði á Dalborg og Lyngholti, 10 ár við hvorn skóla. Gerði Ósk er þakkað fyrir framlag til skólastarfs í Fjarðabyggð og óskað velfarnaðar.
Jóhanna Guðnadóttir verður áfram skólastjóri við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Hildur Ósk Pétursdóttir verður aðstoðarskólastjóri samhliða starfi leikskólastjóra við Kærabæ. Þá tekur Gréta Björg Ólafsdóttir við starfi deildarstjóra sérkennslu við skólann frá og með 1. ágúst.
