Sundlaug Eskifjarðar er lokuð vegna viðhalds, stefnt er að opna aftur 27. ágúst. 

Fara í efni
17.08.2026 Fréttir, Menning

Dægurlagadraumar snúa aftur á Austurland

Deildu

Hin hæfilega hallærislega, eins og þau lýsa sér sjálf, og ástæla hljómsveit Dægurlagadraumar mætir aftur til leiks og heldur tónlistarskemmtanir á Austurlandi í lok ágúst. Hljómsveitin, sem er mörgum Austfirðingum góðu kunn, býður upp á söng- og dansgleði í huggulegri kaffihúsastemningu þar sem flutt verður úrval dægurlaga frá miðri síðustu öld ,,lög sem virka eins og malt og hangikjöt á sálina!”

Tónlistarskemmtanirnar verða haldnar:

  • Fimmtudaginn 29. ágúst kl. 20:00 – Tónspil, Neskaupstað
  • Föstudaginn 30. ágúst kl. 16:00 – Valhöll, Eskifirði

Aðgangseyrir er 3.500 kr. og fer miðasala fram við innganginn. Gestum gefst færi á að kaupa sér veitingar meðan á flutningi stendur ásamt því að hlusta og dilla sér við okkar yndislegu íslensku (og íslenskuðu) dægurlög. Hinir sívinsælu smellir Hauks Morthens, Villa Vill, Erlu Þorsteins og fleiri lifna við á ný.

Blásið í gömlu glæðurnar

Hljómsveitin Dægurlagadraumar varð til árið 2011 á Egilsstöðum þegar haldnir voru þeirra fyrstu kaffihúsatónleikar með áherslu á klæðnað, stemningu og perlur dægurlagasögunnar. Hópurinn sló í gegn og lék víða um Austurland allt til ársins 2017, en þá fóru meðlimir í ólíkar áttir.

Nú, níu árum síðar, hefur hópurinn tekið aftur upp þráðinn. Stór hluti upprunalega hópsins hefur nú náð saman á ný til að glæða gömlu dægurlagin lífi á nýjan leik.

Hljómsveitina skipa að þessu sinni:

  • Erla Dóra Vogler – Söngur
  • Jón Hilmar Kárason – Gítar
  • Garðar Eðvaldsson – Saxófónn
  • Þórður Sigurðarson – Hljómborð/Píanó
  • Haukur Ingólfsson – Trommur

Tónlistarskemmtanirnar eru styrktar af Fjarðabyggð (Menningarstofu Fjarðabyggðar), SVN, SÚN, Alcoa Fjarðaáli og Sesam Brauðhúsi.

Menningarstofa og Dægurlagadraumar hvetja alla Austfirðinga og gesti til að mæta, klæða sig í sitt besta púss og njóta dásamlegrar stundar!