Fara í efni
28.10.2025 Fjölskyldusvið, Menning, Skólar

Dagar myrkurs í Eskifjarðaskóla

Deildu

Síðastliðinn föstudag, 24. október, héld nemendur og starfsfólk Eskifjarðaskóla upp á Daga myrkurs. Nemendur og starfsfólk mættu í búningum í tilefni dagsins. Margir bekkir tóku þátt í að skreyta stofurnar með hryllilegum skreytingum – og þá sérstaklega hurðir bekkjarstofanna.

Bæjarbúum gafst tækifæri til að taka þátt í leiknum og kjósa flottustu hurðina á 2. og 3. hæð. Með atkvæðinu fylgdi stuttur rökstuðningur þar sem þátttakendur útskýrðu hvers vegna sú hurð var valin.

Alls tóku 92 þátt í kosningunni og þökkum við þeim kærlega fyrir þátttökuna og áhugann.
Á 2. hæð stóðu 2.–3. bekkur uppi sem sigurvegarar, en á 3. hæð bar 7. bekkur sigur úr býtum eftir harða og jafna keppni.

 Hægt er að sjá myndir frá deginum hér.