Náttúrustofa Austurlands og Menningarstofa Fjarðabyggðar héldu upp á dag íslenskrar náttúru í Þórsmörk listamannasetri í Neskaupstað 16. september síðastliðin.
Viðburðurinn var jafnframt upphitun fyrir BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi. Tekið var á móti nemendum úr Nesskóla fyrir hádegi en eftir hádegi var opið fyrir gesti og gangandi.
Mikil rigning dró ekki úr áhuganum og er áætlað að um 100 manns hafi heimsótt Þórsmörk. Þar á meðal voru nemendur sem komu bæði með bekkjum sínum fyrir hádegi og foreldrum eftir hádegi.

Erlín Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, bauð gestum að skoða lifandi ferskvatnsdýr úr Hólatjörnum og fjörulífverur úr fjörum Norðfjarðar í víðsjá. Vakti það mikla lukku meðal gesta.
Öllum gestum var boðið að taka þátt í að túlka íslenska náttúru í myndformi og, í kjölfarið, verðlaunaleik sem dregið var úr þegar dró að lokum. Þrjú fengu verðlaun frá Náttúru- og Menningarstofu en það voru þau Kristín Aðalheiður, Rúrik Atli og Íris Arney og hlutu þau spil í verðlaun.
Menningarstofa Fjarðabyggðar þakkar Náttúrustofu Austurlands kærlega fyrir samstarfið og öllum þeim sem lögðu leið sína í Þórsmörk fyrir komuna.






