Að sögn Guðlagus A. Sigfússonar, hjá Dýraeftirlitinu, gekk hreinsunin vel fyrir sig í ár og fjölmenntu hunda- og kattareigendur með dýr sín í þjónustumiðstöðvar.
Hunda- og kattarhreinsun stendur yfir í þjónustumiðstöðvum í öllum bæjarkjörum einu sinni á ári. Þeir sem komast ekki á auglýstum tíma, býðst jafnframt annað tækifæri nokkrum vikum síðar, en hreinsunin er mikilvægur liður í bæði velferð dýrsins og almennu heilbrigðiseftirliti.
Fyrir ystu byggðir Fjarðabyggðar, eins og á Dalatanga, kemur Dýraeftirlitið hins vegar á staðinn.