Fara í efni
10.11.2026 Fréttir, Fjarðabyggðarhafnir

Eitt tilboð barst í mönnun og viðhald dráttarbátsins Vattar

Deildu

Eitt tilboð barst í útboði Fjarðabyggðarhafna á mönnun og viðhaldi dráttarbátsins Vattar fyrir árin 2027–2029. Tilboðið var opnað þriðjudaginn 10. nóvember.

Fortuna Skipaþjónusta ehf. bauð í verkefnið og nemur heildartilboðsverð 200.880.000 krónum með virðisaukaskatti.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um niðurstöðu útboðsins. Eftir á að meta gildi tilboðsins og fara yfir það samkvæmt þeim forsendum sem koma fram í útboðsgögnum. Birtar upplýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur.