Þrjú viðhaldsverkefni eru nú í framkvæmd eða á leið til framkvæmda hjá Fjarðabyggð: endurbætur á eldri byggingu leikskólans Dalborgar á Eskifirði, klæðning og ísetning glugga á eldri byggingu Grunnskólans á Reyðarfirði, og endurbætur á þaki Breiðdalsskóla. Verkin eru öll unnin af VHE.

Stækkun leikskólans Dalborgar var tekin í notkun á síðasta ári og hefur hún bætt aðstöðu barna og starfsfólks verulega. Nú er unnið að nauðsynlegum endurbótum á eldri hluta hússins, sem byggður var árið 1997, og verður byggingin að því loknu ein heild utan um leikskólastarfið á Eskifirði. Verkið felur meðal annars í sér uppsetningu loftræstikerfis, endurnýjun gólfefna og kerfislofts, endurnýjun lýsingarkerfis og málun, og eru áætluð verklok 12. ágúst 2026.
Í Grunnskólanum á Reyðarfirði er unnið að klæðningu og ísetningu glugga á einni hlið á eldri byggingu skólans. Áætluð verklok eru í næsta mánuði (júlí 2026).
Verksamningur hefur einnig verið undirritaður vegna endurnýjunar á þaki Breiðdalsskóla. Gert er ráð fyrir að verkið hefjist í lok júní, um leið og veður leyfir, en framgangur þess er að hluta háður veðri þar sem rífa þarf eldra þak. Verkið felur í sér að fjarlægja núverandi klæðningu, yfirfara einangrun, klæða þakið og setja nýjan þakpappa.
Framkvæmdirnar eru hluti af áframhaldandi viðhaldi og uppbyggingu á þjónustubyggingum sveitarfélagsins, með það að markmiði að bæta aðstöðu nemenda og starfsfólks Fjarðabyggðar.
