Fara í efni
01.12.2022

Endurnýjun á lóðaleigusamningum

Deildu

Til að endurnýja lóðarleigusamning skal fara á www.fjardabyggd.is, ýta á appelsínugulan hnapp sem stendur á "íbúagátt". Næst ýtt á innskrá, fyrir neðan þar sem stendur "Rafræn skilríki" er slegið inn símanúmer viðkomandi og skráð inn með rafrænum skilríkjum.

Næst er farið í "umsóknir" sem er fyrir miðju, efst á síðunni. Þaðan undir lið 10 Umhverfis- og skipulagssvið er valið "Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi". Þar er fyllt út það sem þarf og umsókn send inn.

Þegar þessu er lokið fer skipulags- og umhverfisfulltrúi yfir umsóknina og leggur hana fyrir fund umhverfis- og skipulagsnefndar til samþykktar. Í kjölfarið er gert nýtt lóðarblað, samningur gefinn út og sendur til undirritunar. Viðkomandi undirritar samninginn og sendir hann til baka þar sem bæjarstjóri ásamt skipulagsfulltrúa undirrita samninginn og senda hann í þinglýsingu. Þinglýsingargjald er 2500 krónur.

Virðingarfyllst

Aron Leví Beck
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Fjarðabyggðar