Fara í efni
19.06.2019 Fréttir

Enn gerum við gagn - Lokadagur í Mjóafirði 23. júní 2019

Deildu

Fyrir liggja upplýsingar um áætlaðan fjölda göngumanna. Allir velunnarar verkefnisins (og á öllum aldri) eru boðnir velkomnir til að taka þátt í stuttu göngunni að Sólbrekku (sjá neðar). Einnig eru allir íbúar byggðarlaganna og aðrir áhugasamir boðnir velkomnir í grillveisluna, en vegna undirbúnings þurfa þeir sem ekki teljast göngumenn á vegum félaganna, að tilkynna þátttöku í síma 895-9951 eða á netfangið bibbasin@simnet.is eigi síðar en að kvöldi 21. júní.

Minnum á áheitakassana, sem enn liggja frammi á auglýstum stöðum (alla vega til loka júní).

Dagskráin verður sem hér greinir:

Kl. 11:00 Ganga hefst af Mjóafj.heiði og frá Dalatanga í átt að Sólbrekku.

Kl. 12:30 U.þ.b. á þessum tíma eiga gönguhópar að vera komnir í um 1 km fjarlægð frá Sólbrekku. Þaðan verður sameiginleg ganga úr báðum áttum að Sólbrekku. Í þeim hluta göngunnar geta tekið þátt allir sem vilja og sýna með því samhug í verki.

Kl. 13:30 Áætlað er að grillveizla hefjist við Sólbrekku á þessum tíma.

Kl. 15:00 Verkefninu verður formlega slitið eigi síðar en kl. 15:00.

Með von um góða þátttöku og austfirzka veðurblíðu eins og hún gerist bezt.

Yfirgöngustjóri