Erla Margrét Gunnarsdóttir hefur tekið til starfa sem skipulags- og umhverfisfulltrúi Fjarðabyggðar. Hún kemur til sveitarfélagsins frá Ísafjarðarbæ, þar sem hún gegndi sama starfi.
Erla Margrét er byggingartæknifræðingur að mennt og lauk meistaranámi í skipulagsfræðum í Brisbane í Ástralíu árið 2011. Hún er einnig útskrifaður gönguleiðsögumaður frá Menntaskólanum í Kópavogi.
Hún býr yfir fjölbreyttri starfsreynslu og hefur meðal annars unnið við mannvirkjahönnun, steypurannsóknir, kennslu, kvikmyndagerð og leiðsögn. Undanfarin ár hefur hún búið á Vestfjörðum, fyrst á Flateyri og síðar á Ísafirði.
Fjölbreytt verkefni fram undan
Erla Margrét segir mikil tækifæri felast í þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað í Fjarðabyggð. Reynslan af búsetu og störfum á Vestfjörðum hafi jafnframt sýnt henni hversu gott sé að búa á landsbyggðinni.
„Hér sé ég tækifæri til að færa mig til í starfi og nýta reynsluna að vestan. Mig langar að verða hluti af samfélaginu, leggja mitt af mörkum og kynnast nýjum stað sem ég hef heyrt margt gott um,“ segir Erla Margrét.
Starf skipulags- og umhverfisfulltrúa er fjölbreytt. Skipulags- og loftslagsmál verða þar fyrirferðarmikil ásamt úrgangsmálum, dýrahaldi og öðrum verkefnum sem tengjast umhverfi og þjónustu við íbúa.
Fyrstu dagana hefur Erla Margrét meðal annars kynnt sér aðalskipulag sveitarfélagsins, loftslagsstefnu þess og þau verkefni sem nú eru í gangi. Hún hefur einnig farið með Aroni Leví Beck, stjórnanda bygginga-, skipulags- og umhverfisdeildar, um byggðarkjarna Fjarðabyggðar og kynnt sér aðstæður og framkvæmdir á hverjum stað.
Þá hefur hún þegar tekið þátt í fundum um úrgangsmál, bæði innan Fjarðabyggðar og með Austurbrú og öðrum sveitarfélögum á Austurlandi.
Aron segir að með ráðningu Erlu Margrétar koma til með að styrkja skipulags- og framkvæmdasvið sveitarfélagsins.
„Erla Margrét kemur með öflugan faglegan grunn og dýrmæta reynslu frá Ísafjarðarbæ. Ráðning hennar eykur fagþekkingu innan deildarinnar, léttir á miklu verkefnaálagi og gerir okkur kleift að veita íbúum og öðrum enn betri þjónustu,“ segir Aron.
Erla Margrét segist hlakka til fjölbreyttra verkefna og þess að kynnast samfélaginu betur.
„Það sem mér finnst skemmtilegast við starfið á landsbyggðinni er fjölbreytnin. Á sama degi getur maður verið að skoða breytingu á aðalskipulagi, velta fyrir sér staðsetningu hraðahindrana og leita lausna í úrgangsmálum. Ég hlakka mest til að kynnast fólkinu hér og leggja mitt af mörkum við að þjónusta íbúa Fjarðabyggðar eins vel og ég get,“ segir hún.
Sirkusmamma með áhuga á fjallgöngum og krosssaumi
Utan vinnu hefur Erla Margrét gaman af matargerð, tónleikum og fjallgöngum. Hún stundar einnig krosssaum, er kattaeigandi og hyggst næst læra á rafmagnsbassa sem hún keypti fyrr á árinu. Nýjasta áhugamálið eru gusur og hún hefur þegar prófað Fjarðagusuna og hlakkar til að fara aftur.
Það óvæntasta á ferilskránni er þó líklega starfstitillinn „Sirkusmamma“. Sumarið 2015 ferðaðist Erla Margrét um landið með Sirkus Íslands og sá meðal annars um matseld, skipulag og að halda utan um hópinn. Þá dvaldi hún í eina viku á Fáskrúðsfirði á Frönskum dögum, sem var lengsta dvöl hennar á Austurlandi þar til nú.
