Fara í efni
14.03.2020 Fréttir

Fjarðabyggð hlýtur Jafnlaunavottun

Deildu

Fjarðabyggð er stolt af því að hafa nú fengið faggilta vottun á jafnlaunastaðalinn ÍST85:2012. Vottunin er unnin í samvinnu við iCert vottunarstofu og staðfestir vottunin að markvisst er unnið gegn kynbundnum launamun hjá sveitarfélaginu og þannig stuðlað að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Jafnlaunagreining var einnig unnin í samvinnu við PwC en niðurstöður hennar sýna að óútskýrður launamunur af heildarlaunum er 1,4%, og er sá munur konum í vil. Markmið Fjarðabyggðar er að óútskýrður launamunur verði aldrei meiri en 3,5% og sé ávallt sem næst 0%

Fjarðabyggð mun halda áfram að nýta til jafns styrkleika kvenna og karla og vinna áfram að umbótum á þessu sviði. Mikil áhersla er lögð á að jafnlaunakerfið Fjarðabyggðar tryggi gegnsæi í launaákvörðunum, að ákvarðanir fylgi kjarasamningum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.