Fara í efni
10.06.2026 Fréttir, Bæjarráð

Fjarðabyggð má ekki sitja áfram eftir í uppbyggingu innviða ríkisins

Deildu

Fjarðabyggð má ekki sitja áfram eftir í uppbyggingu innviða ríkisins

Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir vonbrigðum með þær áherslur sem birtast í drögum að samgönguáætlun og öðrum áformum ríkisins um innviðauppbyggingu sem snúa að Fjarðabyggð og Austurlandi.

Í bókun bæjarráðs er lögð áhersla á að Fjarðabyggð hafi um of setið eftir þegar kemur að uppbyggingu innviða ríkisins. Á sama tíma standi sveitarfélagið og atvinnulífið á svæðinu í umfangsmikilli uppbyggingu hafna og annarra innviða fyrir milljarða króna til að styðja við áframhaldandi verðmætasköpun fyrir land og þjóð.

Suðurfjarðavegur getur ekki beðið lengur

Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að flýta framkvæmdum við Suðurfjarðaveg. Um er að ræða eitt mikilvægasta samgönguverkefni þjóðvegakerfisins sem hefur beðið of lengi eftir úrlausn.

Í bókuninni kemur fram að ítrekað hafi verið bent á mikilvægi vegarins fyrir umferðaröryggi, búsetuskilyrði, atvinnulíf og samkeppnishæfni sveitarfélagsins.

Bæjarráð Fjarðabyggðar kallar eftir skýrari forgangsröðun ríkisins í uppbyggingu lykilinnviða á Austurlandi. Mynd: Benedikt Jónsson, 

Bæjarráð fagnar jafnframt því að rannsóknir vegna Fjarðaganga séu að hefjast og telur það mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu samgangna á Austurlandi.

Verknám og hjúkrunarrými verði sett í forgang

Bæjarráð lýsir einnig vonbrigðum með að Austurland skuli ekki vera meðal þeirra landshluta þar sem uppbygging verknámshúss er fyrirhuguð á næstu misserum.

Öflugt verknám er lykilforsenda áframhaldandi uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar á Austurlandi. Mikilvægt er að nemendur og fyrirtæki á svæðinu búi við sambærileg tækifæri og annars staðar á landinu. 

Öflugt verknám skiptir sköpum fyrir framtíð atvinnulífs á Austurlandi.

Þá vekur það áhyggjur að fjölgun hjúkrunarrýma á Austurlandi sé ekki fyrirhuguð fyrr en árið 2030, þrátt fyrir augljósa og vaxandi þörf. Íbúar Austfjarða eiga rétt á sömu þjónustu og öryggi og aðrir landsmenn og mikilvægt er að brugðist verði við þeirri þróun sem fyrirsjáanleg er vegna öldrunar þjóðarinnar.

Kallað eftir skýrri forgangsröðun

Bæjarráð bendir á að mörg verkefni á vegum ríkisins hafi verið til umræðu og á áætlunum um árabil án þess að fjármögnun eða framkvæmdir hafi fylgt. Nú þurfi að tryggja að þau komist til framkvæmda.

Bæjarráð skorar á ríkisstjórn og Alþingi að forgangsraða uppbyggingu innviða í Fjarðabyggð í samræmi við mikilvægi svæðisins fyrir inn- og útflutning og grunnatvinnuvegi landsins.

Með markvissum fjárfestingum í samgöngum, verknámi og heilbrigðisþjónustu getur ríkið stutt við áframhaldandi verðmætasköpun, aukið samkeppnishæfni landsins og skapað forsendur fyrir aukinni hagsæld til framtíðar.