Fara í efni
16.04.2026 Fréttir, Íþróttir

Fjarðabyggð og Brettafélag Fjarðabyggðar undirrita samning um uppbyggingu brettaaðstöðu í Oddsskarði

Deildu

Fjarðabyggð og Brettafélag Fjarðabyggðar hafa undirritað samning um leigu á búnaði og þjónustu vegna brettaiðkunar á skíðasvæðinu í Oddsskarði. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2028 og er ætlað að styrkja umgjörð um brettastarf á svæðinu, bæta fyrirsjáanleika og skýra ábyrgð aðila. 

Samkvæmt samningnum mun Brettafélag Fjarðabyggðar meðal annars leggja til búnað fyrir brettabraut, sinna minni háttar viðhaldi, sjá um þjónustu við leigubretti og halda eina opna æfingu í mánuði. Þá verður unnið í sameiningu að uppsetningu og viðhaldi brettabrautar í Oddsskarði yfir vertíðina. 

Markmið samningsins er að tryggja aðstaðu og búnað fyrir brettafólk, efla samstarf milli sveitarfélagsins og félagsins og styðja við áframhaldandi þróun brettaiðkunar í Fjarðabyggð. Fjarðabyggð greiðir 500 þúsund krónur á ári á samningstímanum fyrir leigu á búnaði og þá þjónustu sem samningurinn tekur til. 

„Með þessum samningi erum við að styrkja aðstöðuna fyrir brettafólk í Oddsskarði og skapa skýrari umgjörð utan um mikilvægt samstarf við öflugt íþróttafélag í Fjarðabyggð,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.

Arna Lísa Ingimarsdóttir, fyrir hönd Brettafélags Fjarðabyggðar, segir samninginn mikilvægt skref fyrir starfsemina. „Við fögnum þessum samningi sem styður við brettasamfélagið í Fjarðabyggð og gerir okkur kleift að byggja áfram upp góða aðstöðu, öflugt starf og skemmtilega iðkun fyrir brettafólk á öllum aldri.“

Með samningnum er stigið mikilvægt skref til að efla brettastarf í Oddsskarði og skapa betri umgjörð fyrir iðkendur og gesti svæðisins.