Fara í efni
28.03.2025 Fréttir

Fjarðabyggð og Múlaþing kynna sérstaka páskapassa á skíðasvæðin í Oddsskarði og Stafdal

Deildu

Boðið verður upp á tvo valkosti, páskapassa sem gildir frá fimmtudegi til mánudags (17.-21. apríl) og páskavikupassa sem gildir frá mánudegi fyrir páska til annars í páskum (14.-21. apríl). Passarnir veita ótakmarkaðan aðgang að báðum skíðasvæðunum og aðgang að sundlaugum á svæðinu. Sérstakir fjölskyldupassar verða einnig í boði.

Verðskrá:

Páskapassi:

  • Fullorðnir: 16.900 kr.

  • Börn (11-17 ára): 5.600 kr.

  • Fjölskyldukort (2 fullorðnir + börn): 40.000 kr.

  • Fjölskyldukort einstaklings (1 fullorðinn + börn): 20.000 kr.

Páskavikupassi:

  • Fullorðnir: 18.900 kr.

  • Börn (11-17 ára): 6.300 kr.

Með þessum páskapössum vilja sveitarfélögin styðja við fjölskyldur, efla ferðaþjónustu á Austurlandi og stuðla að bættri lýðheilsu.