Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, tók á móti Neyðarkallinum úr hendi Hjalta Þórarins Ásmundssonar, formanns björgunarsveitarinnar Ársólar á Reyðarfirði.
Nú hefur verið ákveðið að styrkja björgunarsveitirnar enn frekar með kaupum á Neyðarkallinum, til viðbótar við þann stuðning sem sveitarfélagið veitir þeim nú þegar. Sveitirnar í Fjarðabyggð eru fimm talsins og verður skipst á að kaupa þessa táknrænu styttu af þeim. Byrjað var á að kaupa Neyðarkallinn af björgunarsveitinni Ársól á Reyðarfirði.
Fjarðabyggð og björgunarsveitirnar undirrituðu samstarfssamning í september 2025 sem gildir til ársloka 2027. Samningurinn felur meðal annars í sér rekstrarstyrk, endurgreiðslu fasteignaskatts, framlag til námskeiða og stuðning við leitarhunda.
Við undirritun samningsins lagði Jóna Árný áherslu á mikilvægi samstarfsins: „Við erum stolt af öflugu starfi björgunarsveitanna og með þessum samningi sýnum við í verki að við styðjum við bakið á þeim.“
Björgunarsveitirnar gegna mikilvægu hlutverki í öryggi íbúa og sinna fjölbreyttum verkefnum á landi og sjó. Að baki starfinu stendur öflugur hópur sjálfboðaliða sem ver tíma sínum í útköll, þjálfun, viðhald búnaðar og fjáraflanir. Stuðningur við sveitirnar er því jafnframt stuðningur við það mikilvæga starf sem unnið er í þágu samfélagsins.
Hér má lesa nánar um samstarf Fjarðabyggðar og björgunarsveitanna.