Bleikur október hefst í dag. Fjarðabyggð styður átakið og býður starfsfólki upp á fræðslu frá Krabbameinsfélagi Austfjarða. Hrefna Eyþórsdóttir hefur undanfarin ár heimsótt sveitarfélagið og haldið fræðsluerindi fyrir starfsfólk.
Bleika slaufan er árlegt átak Krabbameinsfélagsins þar sem vakin er athygli á krabbameinum hjá konum og sýnd samstaða með þeim sem greinast og aðstandendum þeirra. Með kaupum á slaufunni er stutt við rannsóknir, forvarnir, fræðslu og ókeypis ráðgjöf og stuðning.
Sjáðu þig
Yfirskrift átaksins í ár er „Sjáðu þig“. Með henni hvetur Krabbameinsfélagið konur til að huga að eigin heilsu og vera vakandi fyrir breytingum á líkamanum sem geta bent til krabbameins.
Hönnuðir Bleiku slaufunnar 2026 eru listaparið Tanja Levý og Jökull Jónsson. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og endurspeglar reynslu þeirra af því þegar krabbamein breytir tilverunni.
Sýnum stuðning og samstöðu
Bleiki dagurinn verður miðvikudaginn 21. október. Þá eru landsmenn hvattir til að bera slaufuna, klæðast bleiku og sýna konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning og samstöðu.
Nánari upplýsingar um átakið, fræðslu og leiðir til að styrkja starfið má finna á vef Bleiku slaufunnar.
