Fjarðabyggð hefur undirritað samkomulag um styrk og samstarf við forsvarsfólk bæjarhátíða í sveitarfélaginu sumarið 2026.
Samkomulagið var undirritað á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar á dögunum þegar fulltrúar hátíðanna komu saman og undirrituðu ásamt Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar.
Hátíðirnar í ár eru fjórar: Neistaflug í Neskaupstað, Útsæði á Eskifirði, Franskir dagar á Fáskrúðsfirði og Stöð í Stöð á Stöðvarfirði. Fyrir hönd hátíðanna undirrituðu Guðrún Smáradóttir fyrir Neistaflug, Kristinn Þór Jónasson fyrir Útsæði, Birkir Snær Guðjónsson fyrir Franska daga og Bjarni Stefán Vilhjálmsson fyrir Stöð í Stöð.

Bæjarhátíðirnar eru mikilvægur hluti af mannlífi Fjarðabyggðar og setja sterkan svip á sumarið í sveitarfélaginu. Þær draga að sér fjölda gesta, bæði heimafólk, brottflutta íbúa, ættingja og vini sem snúa heim yfir hátíðarnar, auk annarra gesta sem sækja sveitarfélagið heim.
Þess má geta að í ár verða Franskir dagar og Stöð í Stöð haldin í 30. sinn.
Með stuðningi við bæjarhátíðirnar vill Fjarðabyggð leggja sitt af mörkum til að efla fjölbreytt mannlíf, samveru og gleði í öllum byggðakjörnum sveitarfélagsins. Sumarið fær einfaldlega aðeins meiri lit þegar bæjarhátíðirnar hefjast.
