Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að hækkanir almennra gjaldskráa í rekstri A-hluta sveitarfélagsins verði ekki umfram 2,5% árið 2027. Það er í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Forsenda ákvörðunarinnar er að gildandi kjarasamningar haldi.
Með ákvörðuninni vill Fjarðabyggð leggja sitt af mörkum til að ná sameiginlegum markmiðum um lægri verðbólgu og vexti og bæta hag heimilanna. Í bókun bæjarráðs er lögð áhersla á að allir þurfi að taka höndum saman til að þessi markmið náist.
Bæjarráð skorar jafnframt á ríkisvaldið og stofnanir þess að fylgja góðu fordæmi sveitarfélaganna og takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álögur á heimilin.
Sameiginlegt aðhald og ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins séu lykilforsendur þess að árangur náist og kjarasamningar haldi.
