Verðlaunin verða afhent á Nýsköpunardegi hins opinbera, sem fram fer miðvikudaginn 6. maí hjá Fjársýslunni í Reykjavík.
Í umsögn um tilnefninguna kemur fram að lausnin þyki sérstaklega vel við hæfi fyrir fjölkjarna sveitarfélag eins og Fjarðabyggð, þar sem starfsemin fer fram á mörgum stöðum og mikilvægt er að styðja við góð samskipti, upplýsingaflæði og vinnuanda meðal starfsfólks. Þá er sérstaklega nefnt að innleiðingin hafi gengið einstaklega vel og árangurinn verið framúrskarandi.
Tilnefningin er ánægjuleg viðurkenning á því þróunarstarfi sem unnið hefur verið innan Fjarðabyggðar og þeirri áherslu sem lögð er á að nýta nýjar lausnir til að styðja betur við starfsfólk og daglegt starf sveitarfélagsins.
Nýsköpunardagur hins opinbera er árlegur viðburður fyrir stjórnendur og starfsfólk hins opinbera þar sem fjallað er um umbætur, nýsköpun og framþróun í opinberri þjónustu. Nýsköpunarverðlaun hins opinbera eru veitt í lok dags til þeirra sem hafa skarað fram úr við þróun og innleiðingu nýsköpunar í opinberri starfsemi.
Fjarðabyggð fagnar tilnefningunni og þakkar starfsfólki fyrir mikilvægt framlag til framþróunar og nýsköpunar í þjónustu sveitarfélagsins.
