Bæjarstjórn Fjarðabyggðar tók í dag til fyrri umræðu tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árin 2027–2030. Árið 2027 er gert ráð fyrir 758 milljóna króna afgangi af rekstri sveitarfélagsins og fyrirtækja þess. Samkvæmt tillögunni skilar reksturinn nægu fé til að standa undir rúmlega milljarðs króna fjárfestingum og greiða niður lán á árinu.
Rekstur sveitarfélagsins árið 2027
Rekstrartekjur samstæðu Fjarðabyggðar eru áætlaðar 12,9 milljarðar króna árið 2027, svipað og útlit er fyrir á yfirstandandi ári. Laun og launatengd gjöld eru stærsti útgjaldaliðurinn og hækka samkvæmt áætluninni úr 6,8 í 7,2 milljarða króna. Rekstrarafgangur samstæðu er áætlaður 757,5 milljónir, og þar af 240 milljónir í A-hluta.
Fræðslu- og uppeldismál stærsti málaflokkurinn
Áætluð útgjöld til fræðslu- og uppeldismála nema 4,5 milljörðum króna árið 2027. Til æskulýðs- og íþróttamála er áætlað að verja 1,45 milljörðum króna og til félagsþjónustu rúmum einum milljarði.
Í þjónustu við börn og fjölskyldur er lögð áhersla á snemmtækan stuðning og að börn geti tekið þátt í íþrótta- og frístundastarfi óháð búsetu. Í þjónustu við eldra fólk er meðal annars stefnt að fleiri úrræðum til dagdvalar og áframhaldi verkefnisins Gott að eldast, í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Austurlands.
Skattar og gjöld heimilanna
Lagt er til að útsvar verði áfram 14,97% og að álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækki úr 0,40% í 0,39%. Jafnframt er gert ráð fyrir hækkun afsláttar af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega í takti við verðlagsbreytingar. Tillagan miðar við að almennar þjónustugjaldskrár hækki ekki meira en um 2,5%.
Fjárfest í skólum, íþróttamannvirkjum og höfnum
Árið 2027 er meðal annars gert ráð fyrir að endurnýja þakklæðningu á grunnskólanum á Fáskrúðsfirði og klæðningu og glugga á grunnskólanum á Stöðvarfirði. Þá er áformað að halda áfram undirbúningi að nýju íþróttahúsi á Eskifirði og uppbyggingu við Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Meðal hafnarframkvæmda eru áframhaldandi uppbygging Mjóeyrarhafnar og dýpkun við frystihúsbryggjuna á Eskifirði. Áætlað er að fjárfestingar ársins nemi um einum milljarði króna.
Gert er ráð fyrir að reksturinn skili 1,67 milljörðum króna í handbæru fé frá rekstri. Samhliða fjárfestingum er áætlað að greiða 540 milljónir króna af langtímalánum og leiguskuldbindingum. Ekki er gert ráð fyrir lántöum á áætlunartímanum öðrum en frá Ofanflóðasjóði vegna öryggisframkvæmda. Að teknu tilliti til allra inn- og útgreiðslna er áætlað að handbært fé aukist um 156 milljónir króna á árinu.
Á fjögurra ára tímabilinu er gert ráð fyrir fjárfestingum upp á tæplega 3,4 milljarða króna. Samkvæmt áætluninni lækka skuldir og skuldbindingar samstæðunnar úr 10,9 milljörðum króna í árslok 2027 í 9,3 milljarða í árslok 2030.
Bæjarstjórn tekur endanlega afstöðu til fjárhagsáætlunarinnar við síðari umræðu.
