Fara í efni
26.11.2026 Fréttir, Menning og mannlíf

Fjársjóður í Fjarðabyggð - Héraðsskjalasafn sem geymir söguna í máli og myndum

Deildu
Guðni Th. Jóhannesson rýnir í gögn úr einkaskjalasafni Lúðvíks Jósepssonar á Héraðsskjalasafninu í Neskaupstað

Þegar Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, kom til Neskaupstaðar 20. nóvember til að kynna nýja bók sína um landhelgismálið, gaf hann sér líka tíma til að grúska á héraðsskjalasafninu. Í greininni hér að neðan segir hann frá því að fletta í einkaskjalasafni Lúðvíks Jósepssonar og veltir fyrir sér hvaða gögn við getum varðveitt fyrir komandi kynslóðir.

Guðni Th. Jóhannesson

Hinn 20. nóvember hélt ég til Neskaupstaðar og flutti þar erindi um nýja bók mína, Vald hinna veiku, sem fjallar um sögu landhelgismálsins á árunum 1971 -1974 þegar fiskveiðilögsagan var færð út í 50 sjómílur. Kom þá til mikilla átaka á miðunum við Breta og í landi var líka tekist á. Frá mörgu er að segja og Norðfirðingurinn Lúðvík Jósepsson kom svo sannarlega við sögu.

Gaman var að kynna efnið fyrir áhugasömum áheyrendum og ekki var síðra að verja degi við rannsóknir á Héraðsskjalasafninu í Neskaupstað. Fullyrða má að hvergi sé eins vel búið um gögn og í því glæsta safni. Safnahúsið sjálft er gamalt og á sér merka sögu. Það hefur verið gert upp af einstakri vandvirkni. Allur búnaður til varðveislu gagna á safninu er síðan í allra hæsta gæðaflokki

Sjálfur naut ég þess að fara í gegnum einkaskjalasafn Lúðvíks Jósepssonar sem nýverið var fært héraðsskjalasafninu en ótalmargt fróðlegt er að finna á safninu. Safnið er fyrst og fremst einstakur heimilda- og minningabrunnur fyrir Norðfjörð og Austfirðina alla.

Ég vona að fólk kynni sér safnkostinn í héraðsskjalasafninu og hafi safnið í huga þegar koma þarf gögnum í trygga varðveislu. Allt má teljast merkilegt, ekki síst ljósmyndir en einnig hvers kyns skrifleg gögn. Á safninu eru þegar varðveittar ljósmyndir í þúsundatali og sífellt unnið að skráningu þeirra. Heimamenn mega vera stoltir af Héraðsskjalasafninu í Neskaupstað, glæsilegu safni sem varðveitir sögu liðinna kynslóða, samfélaginu til heilla um alla framtíð.

Höfundur er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Íslands.