17. júní hátíðarhöld Fjarðabyggðar fóru fram í Neskaupstað í ár og sá Þróttur Neskaupstaður um skipulagningu hátíðarhaldanna í samstarfi við Fjarðabyggð.
Veðrið setti vissulega strik í reikninginn og því þurfti að færa hátíðarhöldin inn í íþróttahúsið og fella niður skrúðgönguna sem ráðgert var að færi frá sjúkrahúsinu niður að SÚN-vellinum. Þótt alltaf sé ákveðinn sjarmi í því að halda þjóðhátíðardaginn utandyra, ekki síst þegar veðrið leikur við hátíðargesti, gekk dagskráin vel innandyra og mætingin var frábær.
Hátíðarhöldin hófust með hátíðarræðu Þuríðar Lillýjar Sigurðardóttur, forseta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Að henni lokinni tók við fjölbreytt dagskrá með söngatriðum, skemmtun og afþreyingu fyrir börn og fullorðna. Góð stemning var í húsinu og ekki var annað að sjá en að bæði ungir sem aldnir hafi notið dagsins.
Gestir létu sig ekki vanta og var þátttakan með allra besta móti. Um 500 pylsur voru grillaðar fyrir hátíðargesti, sem segir sína sögu um fjöldann og gleðina sem einkenndi daginn.
Fjarðabyggð þakkar Þrótti Neskaupstað kærlega fyrir öflugt og gott starf við skipulagningu hátíðarhaldanna í ár. Þá fá allir sjálfboðaliðar sérstakar þakkir fyrir að standa vaktina, taka þátt í undirbúningi og leggja sitt af mörkum til að gera daginn hátíðlegan og ánægjulegan.















