Bæjarhátíðin Útsæðið fór fram á Eskifirði um helgina og tókst frábærlega. Veðrið lék við hátíðargesti, langt umfram væntingar og veðurspár, og góð þátttaka var í dagskránni alla helgina.
Hátíðin hófst á miðvikudegi og á fimmtudeginum komu íbúar saman við hverfagrill víðs vegar um bæinn. Þaðan tók við viðburðarík helgi þar sem tónlist, myndlist, íþróttir og fjölskylduskemmtun settu svip sinn á Eskifjörð.
Á föstudeginum var meðal annars myndlistarsýning í Hulduhlíð og Leiknir og Neisti mættust í styrktarleik á Eskifjarðarvelli. Um kvöldið tók tónlistin við í Valhöll.
Líf og fjör á Eskjutúni
Mikið líf var á hátíðarsvæðinu á Eskjutúni á laugardeginum. Þar var meðal annars boðið upp á kökukepni krakka, kassabílarallý, hoppukastala, markað, kraftmót og hæfileikakeppnina Esk Factor.
Níu krakkar tóku þátt í hæfileikakeppninni og stóðu þau sig öll frábærlega. Keppnin vakti mikla lukku og er ljóst að hún er komin til að vera.
Tíu lambaskrokkar og hundruð skammta

Matarveislan á laugardeginum naut mikilla vinsælda. Í fyrsta skipti kláruðust allir tíu lambaskrokkarnir sem grillaðir voru fyrir gesti hátíðarinnar.
Um 400 skammtar af lambakjöti voru bornir fram, ýmist sem grillkjöt eða í tortillum, auk um 300 pylsuskammta.
Rúmlega 400 manns í afmæliskaffi

Hátíðinni lauk á sunnudeginum með 240 ára afmæliskaffi Eskifjarðar í Valhöll og komu rúmlega 400 manns við í kaffinu.
Þar voru að venju sýnd gömul myndbönd frá Eskifirði og nágrenni, þar á meðal myndefni sem ekki hafði áður verið sýnt. Myndefnið rúllaði samtímis í tveimur sölum og var ólíkt efni sýnt í hvorum sal, þannig að gestir gátu farið á milli og séð sem mest.
Viðburðaríku sumri lokið
Útsæðið var síðasta bæjarhátíð sumarsins í Fjarðabyggð. Fjórar bæjarhátíðir voru haldnar í sveitarfélaginu í sumar; Stöð í Stöð, Franskir dagar, Neistaflug og Útsæðið. Þær fóru allar vel fram og þátttaka var mjög góð.
Sumarið hefur auk þess verið auðugt af öðrum viðburðum. Þar má meðal annars nefna gönguvikuna Á fætur í Fjarðabyggð og Stríðsáradaginn, sem ásamt bæjarhátíðunum hafa dregið fólk saman og skapað líf og stemningu í samfélögunum víðs vegar um Fjarðabyggð.
Að baki viðburðum sem þessum liggur mikil vinna fjölmargra sjálfboðaliða, félagasamtaka, fyrirtækja og annarra sem leggja sitt af mörkum. Góð þátttaka í sumar er því ekki aðeins ánægjuleg fyrir gesti heldur einnig góð viðurkenning á því öfluga starfi sem unnið er í samfélögunum.


















