Fara í efni
10.02.2017 Fréttir

Fjölnota í febrúar

Deildu

Í vikunni fjölluðu fjölmiðlar um gáshnall sem synti á land í Noregi. Þegar hann var aflífaður kom í ljós að hann hafði innbyrt meira en þrjátíu plastpoka. Í tilefni af því birti Náttúrustofa Austurlands myndir af hnýðingi sem rak á fjöru í Fáskrúðsfirði á 9. áratug síðustu aldar. Höfðu tveir innkaupapokar stíflað meltingarveg hans.

Fjarðabyggð hvetur til þess að dregið sé úr burðarplastpokum og að íbúar noti frekar margnota burðarpoka sem fást hjá ýmsum þjónustuaðilum í sveitarfélaginu t.d. Krónunni, Kjörbúðinni, Nesbakka og Byko. Einnig býður Pokastöðin Norðfirði upp á margnota poka í verslunum í Neskaupstað. Þetta eru taupokar sem saumaðir eru af Pokastöðinni úr notuðum fötum og viðskiptavinir geta fengið að láni.