Fara í efni
24.02.2025 Fréttir

Fjölskyldunefnd heimsótti nýjan búsetukjarna á Reyðarfirði

Deildu

Í búsetukjarninn verða sex einstaklingsíbúðir og skammtímavistun fyrir fötluð börn. Þar verður einnig starfsmannaaðstaða, setustofa fyrir íbúa og gesti og tækjageymsla. Notast verður við nýjustu velferðartækni til að auka öryggi, sjálfstæði og lífsgæði íbúanna.

"Við erum stolt af þessu verkefni. Búsetukjarninn mun bæta þjónustu við fatlað fólk og fjölskyldur þeirra og veita þeim öruggt og gott heimili," sagði Ragnar Sigurðsson, formaður fjölskyldunefndar.

Laufey Þórðardóttir bætti við: "Þetta er mikilvægur áfangi fyrir samfélagið okkar. Við höfum lagt áherslu á að hanna aðstöðuna með þarfir íbúanna í huga og tryggja að þeir fái bestu mögulegu þjónustu."

Byggingin er hluti af samstarfssamningi milli Fjarðabyggðar og R101 ehf., sem var undirritaður á dögunum. Fjarðabyggð mun ekki eiga fasteignina sjálfa en mun reka þjónustuna. Íbúarnir munu leigja íbúðirnar sem í boði verða.

Róbert Óskar segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að nýta heimamenn við byggingu búsetukjarnans. "Verktakar hér á svæðinu hafa tekið þessu verkefni með miklum velvilja. Það hefur gengið vonum framar að nýta heimamenn í sem flesta verkþætti, og það skiptir máli fyrir samfélagið okkar," sagði hann.

Reyðarfjörður var valinn sem staðsetning vegna miðsvæðisstöðu hans og góðrar aðgengis að nauðsynlegri þjónustu. Einnig gefur nálægðin við Múlaþing möguleika á samstarfi um þjónustu.

Fjarðabyggð og R101 ehf. munu sækja um stofnframlög til HMS, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Fjarðabyggðar til að tryggja fjármögnun verkefnisins.

Með tilkomu þessa búsetukjarna verður þjónusta við fatlað fólk í Fjarðabyggð stórbætt og fleiri fá tækifæri til að búa sjálfstætt með viðeigandi stuðningi.