Yfir 200 manns komu saman á Mjóeyri á Eskifirði í gær, 21. september, þegar Skoppa og Skrítla buðu fjölskyldum í fjörubingó á BRAS, barna- og menningarhátíð Austurlands. Veðrið lék við gesti og bæði börn og fullorðnir skemmtu sér vel við ævintýraleit í fjörunni.
Fjölskyldurnar fengu fjörubingóspjöld og búnað til að auðvelda leitina, meðal annars skóflur, fötur, kíki og stækkunargler. Auk bingóverðlauna var hægt að vinna sér inn aukaverðlaun fyrir að finna hjartasteina, reisa sandkastala og fleyta kerlingar.
Samveran var í aðalhlutverki og gaf fjörubingóið börnum, foreldrum, ömmum og öfum tækifæri til að leika sér, spjalla og njóta útiverunnar saman.

Skoppa og Skrítla þökkuðu fyrir hlýjar móttökur í færslu á samfélagsmiðlum að viðburðinum loknum. Þar minntu þær á að einfaldar samverustundir geti orðið að dýrmætum minningum:
„Oftast eru það ekki stóru hlutirnir sem sitja lengst í hjartanu. Það eru gæðastundirnar með fólkinu okkar.“
