Auk flóttamafólksins var einnig boðið fulltrúum úr Félagsmálanefnd Fjarðabyggðar, starfsmönnum félagsþjónustusviðs, fulltrúa frá Austurbrú, starfsfólki frá Grunnskólum í Fjarðabyggð auk fulltrúum Rauða krossins. Boðið var uppá grænmetissúpu og að henni lokinni gæddu gestir sér á vöfflum með rjóma og mæltist það afar vel fyrir.
Í hópnum sem kom í mars eru 4 fjölskyldur, tvær hafa sest að í Neskaupstað og tvær á Reyðarfirði og hafa fyrstu mánuðurnir gengið vel fyrir sig.
