Enginn var um borð í prammanum þegar þetta átti sér stað, en um borð eru um 10 þúsund lítrar af díselolíu.
Varðskipið Þór hefur verið á svæðinu í nótt, vaktað það, og tryggt mengunarvarnir. Í birtingu munu aðstæður síðan verða metnar frekar, og kannað hvort hægt verði að lyfta prammanum upp.
Fjarðabyggðarhafnir fylgjast náið með aðstæðum á svæðinu, og verða frekari tilkynningar sendar út þegar þær liggja fyrir.