Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hitti Hildi í dag í tilefni af starfslokum hennar eftir 40 ár við Grunnskóla Reyðarfjarðar. Jóna kvaddi hana og þakkaði henni fyrir farsæl störf í þágu barna og samfélagsins.
Þegar Hildur hóf störf við skólann árið 1986 ætlaði hún sér að dvelja á Reyðarfirði í fimm ár. Dvölin varð heldur lengri og á þessum fjórum áratugum varð Reyðarfjörður heimili hennar og skólinn stór hluti af lífinu.
Hildur er uppalin í Kópavogi og flutti austur með eiginmanni sínum, Þóroddi Helgasyni, og ungum syni þeirra. Þóroddur er frá Reyðarfirði, en fjölskyldan kom beint frá Kaupmannahöfn þar sem þau höfðu dvalið í tvö ár við nám og störf.
„Ég man sérstaklega eftir fyrstu nóttinni minni á Reyðarfirði. Við sváfum á stofugólfinu hjá tengdaforeldrum mínum og ég grét mig í svefn. Mér fannst breytingin svo mikil að ég ákvað að dvölin yrði ekki löng – fimm ár í mesta lagi.“
Dvölin varð þó heldur lengri.
„Fimm árin urðu að tíu, tíu urðu að tuttugu og áður en ég vissi af eru liðin 40 ár. Reyðarfjörður varð heimili mitt og skólinn stór hluti af lífi okkar hjónanna.“
Skólamálin við eldhúsborðið
Hildur var umsjónarkennari í um 20 ár og naut þess að fylgja nemendum eftir og kynnast þeim vel. Skólinn fylgdi líka með heim, því Þóroddur varð skólastjóri eftir fyrsta starfsár hennar og gegndi því starfi í tvo áratugi áður en hann varð fræðslustjóri.
Með tímanum færðist áhugi Hildar meira að sérkennslu. Árið 2007 varð hún deildarstjóri sérkennslu og gegndi því starfi til starfsloka, auk þess að sitja í stjórnendateymi skólans. Samstarf við foreldra, kennara og annað fagfólk varð sífellt stærri þáttur í starfinu.
„Ég hef lært að hvert barn er einstakt og stundum þarf heilt teymi til að finna réttu leiðina fyrir hvert barn.“
Samskiptin alltaf jafn mikilvæg

Skólastarfið hefur breyst mikið á þessum fjórum áratugum. Skólinn hefur stækkað, nemendahópurinn orðið fjölbreyttari og tæknin breytt námi og kennslu. Hildur segir jafnframt meiri áherslu á að mæta hverjum nemanda þar sem hann er og finna leiðir sem henta ólíkum þörfum.
Eitt hefur þó alltaf verið jafn mikilvægt.
„Fyrir mér eru það fyrst og fremst góð samskipti. Að sjá nemandann, hlusta á hann, sýna honum virðingu og skapa traust hefur alltaf verið grunnurinn að góðu skólastarfi.“
Hún vill að nemendur taki fleira með sér út í lífið en þekkingu á námsefninu. Að kunna að vinna með öðrum, hlusta og sýna virðingu skipti líka miklu máli.
„Tæknin getur hjálpað okkur mikið, en hún kemur aldrei í staðinn fyrir mannleg samskipti.“
Frá glímusýningu til Japans
Meðal minninganna sem standa upp úr er heimsókn 25 japanskra nemenda. Þeir dvöldu hjá fjölskyldum í bænum, meðal annars hjá Hildi og Þóroddi, og kynntust skólanum, samfélaginu og austfirskri náttúru.
Á sameiginlegri hátíð í íþróttahúsinu sýndu íslensk og japönsk börn meðal annars dans, júdó, glímu og tónlist.

„Það var ótrúlega gaman að sjá hvað börnin náðu vel saman þrátt fyrir ólíkt tungumál og ólíkan bakgrunn.“
Heimsóknin átti líka eftir að leiða fjölskylduna til Japans. Syni Hildar, sem sýndi glímu, var boðið að dvelja þar í nokkra mánuði og læra júdó. Hann þáði boðið og eftir að hann var kominn heim fór fjölskyldan til Matsuyama að heimsækja staðinn og fólkið sem hann hafði dvalið hjá. Þar fóru þau meðal annars í skólaheimsókn og fylgdust með júdóæfingu.
Leiklistin er önnur kær minning. Hildur setti upp leikrit með nemendum á árshátíðum og litlu jólunum, sum frumsamin, og naut þess að sjá þá blómstra á sviðinu.
„Nemandi sem var feiminn í kennslustofunni gat allt í einu farið að skína þegar hann fékk tækifæri til að leika eða koma fram.“
Samheldinn vinnustaður og lausnamiðað samstarfsfólk
Nemendurnir eru það sem Hildur segir hafa gefið henni mest í starfinu. Sérstaklega hafi verið ánægjulegt að fylgja þeim sem þurftu að hafa meira fyrir náminu og sjá þá ná árangri.
Það er líka gaman að hitta fyrrverandi nemendur síðar á lífsleiðinni. Nýlega rakst hún fyrir tilviljun á fjóra þeirra á ferðalagi erlendis. Þeir voru allir á grænni grein í námi og starfi og töluðu vel um skólann.
Grunnskóli Reyðarfjarðar hefur jafnframt verið henni frábær og samheldinn vinnustaður. Hildur leggur áherslu á að góður starfsandi, jákvæðni og lausnamiðun samstarfsfólksins hafi átt stóran þátt í því að hún starfaði þar í fjóra áratugi. Hún segist hafa verið einstaklega lánsöm með vinnufélaga og stjórnendateymi í gegnum tíðina.
„Ég held satt best að segja að minn góði vinnustaður Grunnskóli Reyðarfjarðar hafi átt stóran þátt í því að ég starfaði þar í 40 ár. Það er ekki sjálfgefið að vilja mæta í vinnuna í fjóra áratugi en það hefur einfaldlega verið svo gaman og gefandi að mæta í vinnuna.“
Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar, starfaði með Hildi í 36 ár og segir samstarfið hafa verið forréttindi.
„Hildur hefur alla tíð verið öflugur vinnufélagi og góður vinur. Fagmennska, gleði og viljinn til að vinna með fólki og aðstoða bæði nýtt og reynt starfsfólk hafa einkennt störf hennar.
Hún vílaði ekkert fyrir sér, hvort sem það var að semja námsefni og leikrit, leika við börnin úti í frímínútum eða leiða faglegt starf innan skólans. Hún er fjölhæf og drífandi og það hafa sannarlega verið forréttindi að fá að starfa með henni öll þessi ár.“
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, þakkar Hildi fyrir framlag hennar til skólasamfélagsins.
„Hildur hefur með störfum sínum við Grunnskóla Reyðarfjarðar lagt mikilvægt framlag til skólasamfélagsins og velferðar barna og ungmenna í Fjarðabyggð. Með fagmennsku sinni, reynslu og umhyggju hefur hún haft jákvæð áhrif á líf fjölmargra nemenda og fjölskyldna þeirra.
Fyrir hönd Fjarðabyggðar vil ég færa Hildi innilegar þakkir fyrir farsæl og ómetanleg störf í þágu skólasamfélagsins. Um leið óska ég henni hjartanlega til hamingju með þessi nýju tímamót í lífinu og alls hins besta á eftirlaunaárunum. Það er dýrmætt fyrir hvert samfélag að eiga fólk eins og Hildi sem hefur helgað krafta sína því að styðja börn og hjálpa þeim að blómstra.“
Ferðalög, fjölskyldan og kannski einn dans
Ferðalög eru aðaláhugamál Hildar og nú gefst meiri tími til að sinna þeim. Þau hjónin eru nýkomin úr gönguferð á Ítalíu, hafa farið í nokkrar hjólaferðir erlendis og ætla að halda því áfram. Framundan er ferð til Indlands og Nepal.
Tvíburasystir Hildar og mágur búa í Delhi. Það hefur gefið þeim hjónum tækifæri til að ferðast þangað undanfarin ár og kynnast landinu í gegnum þau.
Heima fyrir er líka nóg að gera. Þau eru bæði hætt að vinna og hafa nýlega smíðað garðhús og útieldhús og verið að gera pallinn notalegan. Þau fara reglulega í líkamsrækt í Eyrina, ganga eða hlaupa og dansa þegar tækifæri gefst. Meiri tími með börnum og barnabörnum er einnig kærkominn.
Og svo er það garðurinn.
„Ég hef mikinn áhuga á garðyrkju og finnst eitthvað sérstaklega notalegt við að fylgjast með því sem maður plantar vaxa og dafna. Það er kannski svolítið eins og í kennslunni, maður leggur sitt af mörkum, hlúir að og gefur hlutunum tíma.“
Nú gefst tækifæri til að gera hlutina á eigin hraða og njóta þess að vera saman.
„Og ef pallurinn er orðinn fallegur, ljósin kveikt og blómin í fullum skrúða, þá er aldrei að vita nema við skellum okkur í einn dans.“









