Fara í efni
30.09.2026 Fréttir, Starfsfólk

Fólk í fréttum: Félagsmiðstöðvarhjarta og mörg járn í eldinum

Deildu

Fólk í fréttum: Félagsmiðstöðvarhjarta og mörg járn í eldinumEygló Rut Hákonardóttir, forstöðumaður frístundamála hjá Fjarðabyggð, hefur mikinn áhuga á fólki, samskiptum og því að skapa fjör og gleði. Hún vill byggja upp öflugt frístundastarf og vera málsvari barna og unglinga í sveitarfélaginu.

„Ég hef alltaf verið með mikið félagsmiðstöðvarhjarta og mér finnst unglingar bara sjúklega skemmtilegir,“ segir Eygló.

Áhuginn leiddi hana í tómstunda- og félagsmálafræði. Hún segir námið hafa passað vel við sig og verið bæði gefandi og krefjandi.

„Það er ekki alltaf leikur og fjör hjá okkur þrátt fyrir að vera mikið stemningsfólk.“

Margir hattar og fjölbreytt verkefni

Fjölbreytnin í starfinu hefur komið Eygló skemmtilega á óvart. Hún segir verkefnin kalla á ólík hlutverk og finnst gaman að fá að takast á við þau.

„Ég get líka alveg skipt mér af og geri það hiklaust þegar mér finnst þess þurfa, enda vil ég vera málsvari fyrir börn og unglinga í Fjarðabyggð.“

Það sem gefur henni mest er tækifærið til að móta og byggja upp frístundastarfið. Hún leggur sérstaka áherslu á starfsfólkið sem vinnur beint með börnunum og unglingunum.

„Það skiptir ótrúlega miklu máli að hafa gott starfsfólk sem getur verið bæði faglegur vinur barnanna og unglinganna, en á sama tíma tryggt öruggt og uppbyggilegt frístundastarf.“ 

/cdn/media/IMG_4385.jpg?v=1790764482

Draumur um starf fyrir alla aldurshópa

Eygló kemur sjálf úr öflugu félagsmiðstöðvastarfi og langar að skapa starf í þeim anda í Fjarðabyggð. Hún sér fyrir sér að fólk á öllum aldri geti fundið þar eitthvað við sitt hæfi.

„Ég stefni alveg á að gera það – en auðvitað ekki ein. Það þarf hjálp frá starfsfólki, fólkinu sjálfu og öllum sem koma að starfinu.“

Tengslin gerðu Fjarðabyggð að heimili

Edited in Tezza with: BW & Paradiso
Eygló er dugleg að mæta í ræktina

Eygló og fjölskylda hennar fluttu frá Noregi til Reyðarfjarðar með tímabundna dvöl í huga. Eftir um sex mánuði fór hún hins vegar að sjá fyrir sér að búa hér til lengri tíma.

„Þá var ég farin að kynnast fólki, skapa tengsl og fann bara hvað það er ótrúlega gefandi að búa úti á landi. Ég get eiginlega ekki ímyndað mér að flytja í bæinn aftur á næstunni.“

Hún segir hjálpsemi fólksins hafa skipt fjölskylduna miklu máli, enda sé bakland hennar á staðnum ekki stórt.

„Allir eru svo tilbúnir að hjálpa og styðja okkur, sem skiptir ótrúlega miklu máli þar sem við erum ekki með mikið bakland hér. Ég þarf bara aðeins að læra að þiggja hjálpina líka.“

Markmiðið að allir verði gususjúkir

Utan vinnunnar er Eygló mikið í Eyrinni og kann vel að meta samfélagið þar. Hún sækir líka sundið, sérstaklega með Fjarðagusu í sundlauginni á Eskifirði. 

„Markmiðið er auðvitað að allir verði gususjúkir!“ 

Kona heldur á stórum blævæng fyrir gusu
Gusumeistarinn 

Sem gusumeistari fær hún að vinna með ró og andlega líðan. Förðunin gefur henni annars konar tækifæri til að tengjast fólki og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín.

„Ég er algjör skellibjalla með marga hatta, bæði í vinnu og einkalífi.“

Alltaf að brasa, yfirleitt með plan

Eygló telur að þeir sem þekki hana best myndu segja að hún tali mikið og sé alltaf út um allt. Hún segir þó skipulagið fylgja fjörinu.

„Ég elska að hafa mörg járn í eldinum, er með mikið frumkvæði og finnst ótrúlega gaman að taka að mér ólík verkefni.“

Og lýsingin á henni sjálfri er einföld:

„Ég er alltaf að brasa eitthvað, en yfirleitt með plan á bak við það!“