Jóhanna Karlsdóttir, leiðbeinandi í leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði, fagnaði á dögunum 48 ára starfsafmæli. Hún hóf störf aðeins 18 ára gömul og hefur starfað í fullu starfi við leikskólann allar götur síðan.
„Ég ætlaði alltaf að fara í leikskólakennaranám en vildi prófa að vinna fyrst og sjá hvernig mér líkaði. Það varð að einu ári, árin urðu fleiri og hér er ég enn,“ segir Jóhanna.
Hún segir áhugann á starfinu ekki hafa minnkað með árunum.
„Ég hef alltaf haft gaman af börnum. Að vinna með þeim er bæði lærdómsríkt og þroskandi.“
Þrír starfsmenn og tvískiptur leikskóli
Jóhanna hóf störf þegar leikskólinn var til húsa í Hermes. Starfsemin var mun minni í sniðum en hún er í dag, bæði börnin og starfsfólkið voru færri.
„Við vorum aðeins þrjár sem unnum saman. Ég vann með yndislegum konum sem kenndu mér mikið og urðu síðar meðal minna bestu vinkvenna, þótt nokkur aldursmunur væri á okkur.“
Leikskólinn var þá tvískiptur. Fyrri hópurinn mætti klukkan 7.45 og var til hádegis en sá síðari frá klukkan 12.45 til 18. Öll börnin fóru heim í mat.
Mikið hefur breyst á þessum 48 árum. Börnunum hefur fjölgað og starfsfólkinu sömuleiðis. Nú er meira unnið með börnin í litlum hópum og aðstaða fyrir bæði börn og starfsfólk hefur batnað mikið, innan dyra sem utan.

Vorsýningar og útskriftarferðir
Ýmsar skemmtilegar hefðir hafa sett svip sinn á leikskólastarfið í gegnum tíðina. Jóhanna minnist sérstaklega vorsýninganna sem lengi voru haldnar við leikskólann.
„Það var lögð mikil vinna og metnaður í sýningarnar. Allar deildir voru með atriði á sviði og verk barnanna voru til sýnis.“
Hún minnist einnig útskriftarferða með elstu börnunum þar sem gist var í sumarbústað yfir nótt.
„Þetta voru virkilega skemmtilegar ferðir. Svo eru kaffihúsaferðirnar okkar um jólin alltaf jafn hátíðlegar.“
Gullkornin gefa starfinu gildi
Að sögn Jóhönnu fylgir starfinu mikil gleði, væntumþykja og lærdómur. Börnin sjá líka til þess að aldrei skortir spaugileg tilsvör.
„Það falla mörg gullkorn á hverjum degi sem gefa starfinu gildi. Einu sinni fannst þriggja ára barni ég vera heldur kröfuhörð þegar ég bað það um að fara vel með bækurnar og sitja kyrrt á meðan það skoðaði þær. Barnið sneri sér þá að mér og spurði hvort ég væri ekki bara að fara aftur í kaffi.“
Annað eftirminnilegt gullkorn féll þegar Jóhanna sagðist þurfa að fara til tannlæknis.
„Þá kom barn til mín og sagði: Nei, nei, Jóhanna, þú þarft ekki að fara til tannlæknis. Karíus og Baktus eru í leikhúsinu á Akureyri.“
Stolt af því að tilheyra hópnum
Þegar Jóhanna er spurð að því hver uppskriftin sé að svo löngum starfsferli stendur ekki á svarinu: „Gleði, þolinmæði, húmor og jákvæðni.“
Hún segir samstarfsfólkið eiga stóran þátt í því hversu vel henni hefur liðið í starfinu.
„Að vinna í Lyngholti er tóm gleði. Hér er frábært og skemmtilegt samstarfsfólk og ég er stolt af því að tilheyra þessum hópi.“
Samstarfsfólk Jóhönnu segir hana hafa verið stoð og styttu í skólastarfinu öll þessi ár. Ófáa textana hafi hún farið með og ótal lög sungið með nemendum skólans í gegnum tíðina.
„Við öll í Lyngholti þökkum Jóhönnu fyrir allt sem hún hefur kennt okkur.“