Fara í efni
11.01.2016 Fréttir

Fortitude II á leiðinni

Deildu

Að þessu sinni fer framleiðslan fram í tveimur framleiðslulotum sem standa yfir annars vegar frá 1. til 28. febrúar og hins vegar frá 28. mars til 25. apríl.

Sem fyrr fara tökur fram á Reyðarfirði og Eskifirði og verður sviðsmyndin í báðum bæjarkjörnum með líku sniði og áður. Jafnframt verður nokkrum nýjungum bætt við, s.s. viðbyggingu við veitinga- og gististaðinn Tærgesen á Reyðarfirði, sem gegnir hlutverki Midnight Sun Hotel. Þá verður kvikmyndakrani settur upp ofan við þéttbýlið á Reyðarfirði við Búðarárfoss, þar sem hundasleðabúðir eða "Husky Compound" verða jafnframt staðsettar.

Vonir standa til þess að veturinn nú verði jafn snjóþungur og í fyrra, en þegar framleiðsla þáttanna hófst snemma árs 2014 fór svo að flytja þurfti umtalsvert magn af snjó af hálendinu í nágrenni Reyðarfjarðar og Eskifjarðar til að bæta upp snjóleysi sem þá var á láglendi.

Framleiðendur Fortitude eru Sky Atlantic. Eins og áður sér íslenska kvikmyndafyrirtækið Pegasus um framleiðslu þess hluta þáttanna sem tekinn er hér á landi.