Fjarðabyggð mætir á laugardaginn liði Víkings Ólafsvík sem er í öðru sæti 1.deildar og getur Fjarðabyggð með sigri komist í 2.sæti deildarinnar - "Pepsideildarsæti" Leikurinn hefst kl. 15:00 á laugardaginn 11. júlí á Eskjuvelli Eskifirði.
Leiknir leikur á föstudaginn 10. júlí við Hött í Fjarðabyggðarhöllinni kl. 20:00. Sem stendur eru Leiknismenn í harðri baráttu við Huginn Seyðisfirði um 2.sætið í 2.deild.
Kvennalið Fjarðabyggðar er í 4.sæti C-riðils 1.deildar kvenna með 9 stig eftir 5 umferðir.
Liðið leikur næst við Völsung, efsta lið riðilsins, föstudaginn 17.júlí kl. 20:00 á Norðfjarðarvelli.
Fólk er hvatt til að mæta á völlinn og hvetja sitt lið.