Sinfóníuhljómsveit Austurlands heldur stórtónleika þann 12. apríl 2026 klukkan 16:00.
Í kirkjunni á Eskifirði frumflytur hún nýtt verk, Dichotomies, eftir Wesley Stephens, en það er saxófónkonsert þar sem Guido Bäumer verður í einleikshlutverki. Einnig flytur hljómsveitin hina stórfenglegu níundu sinfóníu Antonín Dvořák ásamt L'Arlésienne svítu nr. 2 eftir Georges Bizet undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Áhugasömum er bent á miðasöluna sem fer fram á tix.is : https://tix.is/event/21204/dichotomies
Miðaverð 4.990, en 2.490 fyrir börn.
