Fara í efni
03.09.2026 Fréttir, Menning

Framkvæmdastjóri Safnaráðs kynnti sér safnastarf í Fjarðabyggð

Deildu

Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs, heimsótti Fjarðabyggð þriðjudaginn 1. september. Í heimsókninni kynnti hún sér starfsemi safna sveitarfélagsins og þær umbætur sem unnið er að á aðstöðu þeirra.

Þóra heimsótti söfn víða um sveitarfélagið ásamt starfsfólki Menningarstofu Fjarðabyggðar. Hún kynnti sér meðal annars uppbyggingu nýs Stríðsárasafns á Reyðarfirði, heimsótti Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði og skoðaði varðveisluhúsnæði þess. Einnig var Safnahúsið í Neskaupstað heimsótt og farið yfir aðbúnað í geymslum og varðveislurýmum.

Starfsfólk Menningarstofu fundaði með Þóru að morgni dags og síðdegis átti hún fund með stjórn Menningarstofu. Þar kynnti hún starfsemi Safnaráðs, mikilvægi viðurkenningar safna og starfsumhverfi íslenskra safna.

Menningarstofa Fjarðabyggðar vinnur nú að umfangsmiklum umbótum á starfsemi safna sveitarfélagsins og aðbúnaði þeirra. Menningarstofan hefur meðal annars fengið öndvegisstyrk úr Safnasjóði auk fleiri styrkja til verkefna sem miða að því að efla söfnin og bæta varðveislu safngripa.

Umbótaverkefnin eru unnin í nánu samráði við Safnaráð og önnur söfn í landinu. Heimsóknin var því kærkomið tækifæri til að fara yfir stöðu verkefnanna og ræða næstu skref í uppbyggingu safnastarfs í Fjarðabyggð.