Hluti af jarðvegsframkvæmdum felst í því að borað er í berglög sem verða síðan losuð með sprengingum. Unnið verður í samræmi við reglur um sprengiframkvæmdir í jarðvinnu innan þéttbýlis.
Þannig verður bylgjuhraði og tíðni sprenginga takmörkuð. Vinna við sprengingar er áætlað að hefjist á næstu dögum og mun standa yfir út verktímann með hléum.
Slíkum aðgerðum fylgir ónæði en reynt verður eftir fremsta megni að lágmarka það. Fyllstu varúðar verður gætt og sprengt með vægum hleðslum til að minnka titring og hávaða.
Verktaki mun gefa þrjú löng hljóðmerki (loftlúður) 5 mín fyrir sprengingu. Umferð í nágrenni við sprengjusvæðið er stranglega bönnuð eftir að hljóðmerki hefur verið gefið.
Sprengingar geta verið á tímabilinu 10:00 – 16:00. Verktakinn ber ábyrgð á því að unnið sé samkvæmt framangreindu.
Sérstök athygli er vakin á því að vinnusvæðið við varnargarðana nær einnig yfir eldri varnargarða og skógræktina í Hjallaskógi. Öll óviðkomandi umferð um svæðið er bönnuð á meðan á framkvæmdum stendur.