Fara í efni
15.07.2025 Fréttir

Fuglafjarðar harmonikufelag spiluðu í Safnahúsinu

Deildu

Í gær kom færeyska harmonikkubandið Fuglafjarðar harmonikufelag í heimsókn í Safnahúsið á Norðfirði og tróð upp fyrir áhorfendur á pallinum. Veðrið lék við gesti og stigu sumir dans við harmonikkutónana.
Fuglafjarðar harmonikufelag skipa um 15 Færeyingar sem leika á harmonikkur, mandólík og gítar. Á dagskrá voru færeyskir slagarar og þjóðlög.

dans safnahúsið harmonika
Gestir stigu dans undir harmonikutónlistarinnar á palli Safnahússins. 


Að tónleikum loknum lék Harmonikufelagið fyrir íbúa Breiðabliks.