Eva Sól Heimisdóttir og Gunnhildur Anna Birgisdóttir tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna fyrir hönd Ungmennaráðs Fjarðabyggðar. Þar unnu þær með ungmennum úr öðrum sveitarfélögum að tillögum um málefni sem ungt fólk hefur vakið athygli á á ungmennaþingum undanfarin ár.
Áhrifadagarnir fóru fram í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október. UNICEF á Íslandi stóð fyrir ráðstefnunni í tilefni af 10 ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög.
Eva Sól er formaður Ungmennaráðs Fjarðabyggðar og Gunnhildur Anna varaformaður. Með þeim í för voru Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir og Eygló Hákonardóttir, forstöðumenn frístundamála, og Bergey Stefánsdóttir, stjórnandi íþrótta- og tómstundamála. Ragnar Sigurðsson, formaður fjölskyldunefndar, tók einnig þátt til að heyra sjónarmið ungmennanna og nýta þau í starfi nefndarinnar.
Ungmenni í lykilhlutverki
Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar ungmennaráða víða af landinu, starfsfólk sveitarfélaga, sérfræðingar og kjörnir fulltrúar. Markmiðið var að gefa ungu fólki tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og móta lausnir við þeim áskorunum sem ungmenni hafa bent á á þingum í sínum sveitarfélögum.
Hópavinna og vinnustofur voru stór hluti dagskrárinnar. Þar skiptust ungmenni og fullorðnir á hugmyndum og unnu saman að tillögum að úrbótum. Ungmennin fengu líka tækifæri til að kynnast fulltrúum annarra ungmennaráða og mynda tengsl þvert á sveitarfélög.

Raddir ungmenna í ákvarðanatöku
Samtal ungmenna og kjörinna fulltrúa var mikilvægur hluti ráðstefnunnar. Þar gátu ungmennin komið sjónarmiðum sínum beint á framfæri við kjörna fulltrúa og rætt við þá um málefni sem snerta börn og ungmenni.
Þátttaka Fjarðabyggðar í Áhrifadögunum er liður í að efla ungmennalýðræði í sveitarfélaginu. Með því að skapa fleiri tækifæri til samtals geta börn og ungmenni haft áhrif á ákvarðanir í málum sem þau varða. Ráðstefnan gaf fulltrúum Fjarðabyggðar jafnframt færi á að sækja nýjar hugmyndir og efla samstarf ungmenna, starfsfólks sveitarfélaga og kjörinna fulltrúa.
