Fara í efni
22.04.2026 Fréttir, Menning

Fyrsti öndvegisstyrkur safna Fjarðabyggðar

Deildu

Aðalúthlutun Safnasjóðs fór fram við hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafni í síðustu viku og þar tók Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu, við tveimur stórum styrkjum fyrir hönd Menningarstofu.

Annars vegar þriggja ára öndvegisstyrk að upphæð 3.500.000 milljónir á ári fyrir verkefnið „Sameining safna Fjarðabyggðar“. Verkefnið snýr að styrkingu innviða safna sveitarfélagsins, samtali við samfélagið og samræmingu kerfa og þjónustu. Þetta er í fyrsta sinn sem söfn Fjarðabyggðar hljóta öndvegisstyrk úr Safnasjóði.

Hins vegar eins árs styrk að upphæð 2.000.000 fyrir verkefnið „Eftirfylgni með athugasemdum Safnaráðs, viðbragðsætlanir og neyðarkistur“. Verkefnið snýr að ýmsum úrbótum í Sjóminjasafni Austurlands á Eskifirði og gerð viðbragðsáætlana fyrir söfnin fjögur. Með verkefninu komast Íslenska stríðsárasafnið, Safnahúsið í Neskaupstað og Frakkar á Íslandsmiðum einu skrefi nær því að hljóta safnaviðurkenningu Safnaráðs.