Fara í efni
15.01.2021 Fréttir

Fyrsti opnunardagur í Oddsskarði með takmörkunum

Deildu

Nokkrar takmarkanir eru þó á opnun svæðisins um þessar mundir vegna sóttvarna. Þær eru þessar helstar:

  • 150 manns geta verið á svæðinu í einu auk barna sem eru fædd 2005 og síðar.
  • Þegar 150 manns eru komin á svæðið verður aðgengi að því lokað og upplýsingar um lokun settar á facebook síðu Skíðasvæðisins.
  • Nándamörk eru 2 metrar og óskyldir aðilar þurfa að virða þau mörk sem og hópamyndun.
  • Allir á skíðasvæðinu þurf að vera með grímu.
  • Veitingasala og matsalur í skíðaskála verða lokuð. Vinsamlega takið með nesti og neytið í bifreiðum.
  • Salernisaðstaða verður opin eftir reglum um fjölda í rými - grímuskylda.
  • Skíðaleigan verður lokuð.
  • Miðasala verður opin fyrir kortasölu. Aðeins einn úr hverri fjölskyldu má koma inn í miðasöluna og kaupa kortin. Aðrir bíða í eða við bílinn.
  • Á leið upp að skíðasvæði verða allar bifreiðar stöðvaðar þar sem allir 16 ára og eldri þurfa að skrá sig inn á svæðið. Starfsmaður verður fyrir ofan Eskifjörð og biður einstaklinga um að skrá nafn og kennitölu á skráningarblað.
  • Vinsamlegast virkið rakningarappið hjá öllum í fjölskyldunni áður en komið er á skíðasvæðið.