Fara í efni
20.10.2026 Fréttir, Skólar og fræðsla, Reyðarfjörður

Geimurinn kveikti sköpunargleði og lestraráhuga

Deildu

Geimurinn var í aðalhlutverki í þemaviku sem haldin var á dögunum í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Nemendur unnu að fjölbreyttum verkefnum tengdum geimnum og tóku samhliða þátt í lestrarátaki.

Hugmyndaflugið fékk að njóta sín í skapandi vinnu nemenda. Lestrinum var einnig gefið sérstakt vægi og nemendur hvattir til að lesa bæði heima og í yndislestri í skólanum.

Fyrir lesturinn fengu nemendur að hengja upp stjörnur og geimflaugar sem smám saman fylltu skólann. Þannig varð árangurinn sýnilegur og hvatti til áframhaldandi lesturs.

Þemavikunni lauk með sýningu þar sem foreldrum var boðið í heimsókn til að skoða afrakstur vinnunnar.

Komdu með í geimferð – sjáðu myndir frá þemavikunni í Grunnskóla Reyðarfjarðar.