Fara í efni
25.07.2015 Fréttir

Glæsileg setningarhátíð Franskra daga

Deildu

Brekkusöng stýrði hinn þrautreyndi Árni Johnsen og tóku hátíðargestir vel undir í sígildum sönglögum. Setingarhátíðinni lauk síðan á sérlega veglegri flugeldasýningu.

Dagskrá Franskra daga hófst sl. miðvikudagskvöld. Af þeim fjölmörgu skemmtilegu eða áhugaverðum viðburðum sem þar eru í boði má nefna sýningar Sirkuss Íslands, en bæði fjölskyldu- og fullorðinssýningar sirkussins hafa mælst vel fyrir. Heimildarmyndin "Fáskrúðsfjörður, brot úr sögu bæjar" hefur einnig mælst vel fyrir. Þá má einnig nefna fjölmargar sýningar, tónlistarviðburði og svo að sjálfsögðu dansleiki í Skrúði.