Fara í efni
06.10.2026 Fréttir, Skólar

Gleði og keppnisskap í hausthlaupi Eskifjarðarskóla

Deildu

Nemendur Eskifjarðarskóla gengu, skokkuðu og hlupu skólahringinn föstudaginn 2. október þegar árlegt hausthlaup skólans fór fram. Mikil stemning var meðal nemenda sem mættu ýmist í sérstökum litum eða með andlitsmálningu. Nokkrir foreldrar komu einnig til að hvetja sitt fólk áfram.

Hefð er fyrir því að hlaupa skólahringinn tvisvar á skólaári, að hausti og vori. Eftir rigningu alla vikuna gafst loks tækifæri til að leggja af stað. Nemendur voru hvattir til að taka þátt á sínum forsendum og höfðu 30 mínútur til að fara eins marga hringi og þeir gátu, bæði fyrir bekkinn sinn og skólann í heild.

Skólahringurinn er um 800 metra langur. Hann hefst á körfuboltavellinum og liggur yfir Lambeyrarána, niður Túngötu, fram hjá Sjóminjasafninu og aftur upp á skólavöll.

Nemendur í 10. bekk stóðu uppi sem sigurvegarar að þessu sinni eftir verðuga keppni við aðra bekki. Á yngsta stigi sigraði 5. bekkur en nemendur í 1. og 2. bekk fengu sérstök hvatningarverðlaun. Nemendur í 6. bekk hlupu flesta hringina af öllum bekkjum.

Nánar á vef Eskifjarðarskóla.