glott.fest fer fram í Fjarðabyggð fimmtudaginn 5. júní sem hluti af Innsævi, tvíæringi og lista- og menningarhátíð Fjarðabyggðar. Um er að ræða kvöldtónleika sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir ungt fólk, en viðburðurinn er opinn öllum 18 ára og eldri.
Tónleikarnir fara fram í anda grasrótar og framsækinnar tónlistar þar sem ungir, skapandi og upprennandi listamenn skapa lifandi og hvetjandi andrúmsloft. Á sviðinu í ár koma fram Kári Kresfelder, Anya Shaddock, Lottó, Alaska1867, CYBER og DJ Mellí.
Dagskráin blandar saman listafólki með tengingar við svæðið og rísandi nöfnum að sunnan í einstöku kvöldi sem fangar ferska strauma í íslensku tónlistarsenunni.
Húsið opnar klukkan 19:00 og dagskrá stendur til 23:00. Að tónleikum loknum tekur við eftirpartý á Beituskúrnum með DJ Mellí frá klukkan 23:00 og fram eftir nóttu.
glott.fest er hluti af Innsævi sem fer fram dagana 1.–20. júní. Hátíðin sameinar listir, menningu og samfélag í fjölbreyttri dagskrá um allt sveitarfélagið og leggur áherslu á skapandi starf, samveru og þátttöku heimafólks og gesta.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við sjómannadagshelgina í Neskaupstað og með stuðningi frá Hildibrand og SÚN.
